Velkomin í Skólahljómsveit Grafarvogs
Þessari síðu er ætlað að hjálpa þér svona í blábyrjun að finna þær upplýsingar sem vantar.
Dagatölin sem þú finnur ofarlega í vallistanum hér til vinstri segja okkur hvað er í gangi hverju sinni í grófum dráttum. Þú átt líklega eftir að nota þau mikið.
Skóladagatal-Vetur er PDF skjal með heildaryfirliti skólaársins í grófum dráttum (birt með fyrirvara um smávægilegar breytingar). Sjá hér til vinstri.
"Spurt og svarað" er líka nauðsynlegt að lesa þegar margar spurningar vakna í upphafi.
Ef þú hefur ekki fengið nægjanlegar upplýsingar eftir þann lestur er best að hafa samband við hljómsveitarstjórann eða þinn hljóðfærakennara.